Um mig: Stunda úrsmíðanám við einn fremsta úrsmíðaskóla heims, WOSTEP, sem er í mekku úrsmíðinnar í Sviss. Er 24 ára gamall og hef verið í Sviss síðan í júlí 2007. Námi mínu lýkur í maí/júní 2009 og er planið og draumurinn að lifa áfram í Sviss eftir nám til að bæta mig enn frekar sem úrsmiður, en er tilbúinn að skoða alla möguleika sem koma upp.