Prófíll

  • Nafn: Róbert F. Michelsen
  • Staður: Neuchatel, Sviss
  • Heimilisfang: Rue des Saars 2
  • Atvinna: Úrsmíðanemi
  • Um mig: Stunda úrsmíðanám við einn fremsta úrsmíðaskóla heims, WOSTEP, sem er í mekku úrsmíðinnar í Sviss. Er 24 ára gamall og hef verið í Sviss síðan í júlí 2007. Námi mínu lýkur í maí/júní 2009 og er planið og draumurinn að lifa áfram í Sviss eftir nám til að bæta mig enn frekar sem úrsmiður, en er tilbúinn að skoða alla möguleika sem koma upp.
  • Annað: E-mail: robertmichelsen@msn.com, Skype: robertmichelsen, Símanúmer: 0041 79 554 7555

Auglýsing

Hvað fer að gerast?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Vor í Neuchatel!

28. febrúar 2009 klukkan 18:54
Loksins loksins, vorið er að koma eftir þrjá mjög kalda og hvíta mánuði, sem var í rauninni allur veturinn sem ég hafði. Veturinn lét hressilega að sér kveðja um miðjan nóvember og allur desember var frekar kaldur en ekkert í líkingu við það sem var í janúar og febrúar. Það snjóaði heilmikið í jan og feb, svona ekta íslenskur snjór þar sem snjóaði allan daginn og allt var á kafi í snjó og hitastigið náði sjaldan að skríða yfir núllið. Mig var farið að langa eftir smá hita og sól og um síðustu helgi hlýnaði svo um munaði og ég var nokkuð viss um að vorið væri rétt handan við hornið.

Alla vikuna var svo mjög gott veður og í dag var alveg frábært veður. Ég þurfti því miður að fara í skólann í dag eftir ansi erfiða og strembna viku en við Anna skelltum okkur í stuttan hjólatúr í dag í góða veðrinu og tókum myndavélina með.

From Neuchatel

From Neuchatel

From Neuchatel

From Neuchatel

Ég hlakka mikið til sumarsins. Neuchatel er tvöfalt fallegri og skemmtilegri þegar sólin skín og hitinn er í kringum 25 stigin. Allt saman lífgar við, mannverur og aðrar lífverur.

Róbert F. Michelsen
1 athugasemd

Bolla bolla bolla

24. febrúar 2009 klukkan 21:00
Anna tók sig til um helgina og bakaði íslenskar bollur, svona í tilefni bolludagsins. Ég missti af bolludeginum í fyrra og ég ætlaði ekki að missa af honum í ár enda lífs nauðsynlegur dagur á hverju ári. Við vorum búin að bjóða í bollukaffi Önnu Birnu frænku & fjölskyldu og svo Davíð+Rebekku. Við buðum líka Bjögga og Helgu Lísu en þau komu ekki til Sviss fyrr en í gær og í dag svo þau misstu af svakalegri bolluveislu.

Án þess að orðlengja það eitthvað frekar, þá heppnuðust bollurnar fullkomlega - bragðlega séð. Anna var að baka í fyrsta skipti og stóð sig vel stelpan en eitthvað misheppnuðust bollurnar þó útlitslega. Þær litu nefnilega alls ekkert út eins og bollur heldur meira eins og krumpaðar pönnukökur. Mjög fyndið, því bollurnar voru svo svakalega flottar í ofninum en þegar þær komu út féllu þær saman. Um leið og súkkulaðið var komið ofan á lagaðist þetta þó aðeins. Bragðið var hins vegar alveg jafn gott og áður, algjört nammi.

Okkur fannst líka mjög gaman að fá Önnu Birnu og co í heimsókn til okkar en venjulega er það öfugt, við förum alltaf til þeirra. Sem betur fer höfðum við gert ráð fyrir alveg 6-7 bollum á mann svo við höfðum nóg. Það var akkúrat passlegur afgangur fyrir okkur Önnu í gær og við slátruðum restinni með bestu lyst og fórum létt með það. Ég hugsaði svo um bollur í allan dag og langaði í meira, en ég verð víst að bíða í heilt ár í viðbót. Djö....

Annars er allt gott að frétta. Anna er byrjuð á frönskunáminu og það gengur ágætlega held ég, þótt að þetta sé í erfiðari kantinum. Hún segir að allir í bekknum tali miklu betur frönsku en hún en hún verður enga stund að pikka þetta upp held ég, hún hefur ágætis grunn. Einn kennarinn talar reyndar ógeðslega hratt svo hún þarf að hafa sig alla við bara að hlusta á hann og reyna að setja eitthvað samhengi í setningarnar hjá honum.

Skólinn hjá mér gengur líka mjög vel. Erum ennþá í "precision timing" og verðum út þessa viku og eitthvað í næstu viku. Annars verður það skólaúrið framundan næstu vikurnar, spenntur að halda áfram með það þó að mér finnist þessi hluti námsins mjög skemmtilegur og áhugaverður. Hef aldrei kynnst svona rosalega nákvæmri tímastillingu úra áður svo þetta er spennandi. Efast um að íslenskir úrsmiðir sinni þessum hluta sérstaklega vel, sem er hrikaleg mistök enda er þetta spurning hve nákvæmt úrið á að ganga á handlegg eigandans. Svo ég sé heiðarlegur, þá held ég að það sé alveg heill hellingur sem þarf að kynna fyrir úreltum og gömlum úrsmiðum á klakanum. Stéttin þarf á fersku blóði að halda enda er þetta ekkert nema samansafn af gamlingjum sem lærðu um og uppúr síðustu öld og hafa ekki hundsvit um hvað nútíma úrsmíði gengur út á. Það er allavega mín einlæga skoðun. Ætla ekkert að hafa meira um það að segja svo allt fari nú ekki í háaloft Sealed. Ég fæ örugglega skammir bara fyrir þetta.
Róbert F. Michelsen
3 athugasemdir

Óskarsverðlaunin 2009

21. febrúar 2009 klukkan 12:06
Óskarsverðlaunin verða veitt í 81. skipti annað kvöld og langar mig að koma með smá umfjöllun og spá. Ég skrifaði einu sinni árlega um Óskarinn þegar ég var með gamla bloggið mitt en hætti því augljóslega þegar ég missti áhugann á að halda úti blogginu. Fyrir utan það auðvitað að mér hefur fundist Óskarinn verið hálf dapur undanfarin ár, fremur óspennandi myndir og þar fram eftir götunum.

Hins vegar eru góðar myndir tilnefndar í ár og ég er að mestu leyti sáttur með tilnefningarnar þar sem ég hef séð óvenju margar Óskarsmyndir þetta árið. Þó fannst mér Changeling í leikstjórn Clint Eastwoods fá hálf lítið fyrir sinn snúð, hún hefði vel getað fengið tilnefningu sem besta mynd og leikstjórn. Sömuleiðis sendi Clint frá sér Gran Torino, sem mér finnst með hans bestu myndum og verður klárlega ein af bestu myndum þessa árs, betri en Changeling sem er þó mikið afrek. Frábær mynd í alla staði og hún fékk ekki eina tilnefningu sem er bara skandall. Clint Eastwood sýndi það og sannaði í fyrra að hann er einn albesti kvikmyndagerðarmaður allra tíma með því að senda frá sér tvö sterk stykki með fárra mánaða millibili. Geri aðrir betur, kominn hátt á áttræðisaldur. Body of Lies í leikstjórn Ridley Scott fékk enga tilnefningu, en það er afar góð pólitísk spennumynd með Leonardo DiCaprio og Russell Crowe. Ég er persónulega hrifnastur af The Curious Case of Benjamin Button af þeim myndum sem eru tilnefndar í ár, mynd sem fjallar um mann sem fæðist gamall en yngist eftir því sem árin líða. Mjög áhugaverð mynd sem enginn ætti að missa af. Slumdog Millionaire kom sterk inn, ekta „feel good mynd" sem hefur sópað til sín verðlaunum. Töluvert ólík bókinni, ekki betri en heldur ekkert verri - bara öðruvísi. The Reader fannst mér góð líka, mjög lágstemmd og hæg mynd en háalvarlegt drama sem á alla þá viðurkenningu sem hún á skilið en kemst ekki með tærnar sem Benjamin Button eða Slumdog Millionaire hefur hælana. Svo fannst mér Frost/Nixon áhugaverð og frábærlega vel gerð en samt fannst mér eitthvað skrítið við hana, einhver tónn í henni sem mér líkaði ekki vel við, veit ekki alveg hvað það var. En góð engu að síður.

Ég hef séð eftirfarandi myndir sem hlutu tilnefningarnar, í stafrófsröð:

Bolt (1 tilnefning)
Changeling (3 tilnefningar)
The Curious Case of Benjamin Button (13 tilnefningar)
The Dark Knight (8 tilnefningar)
Frost/Nixon (5 tilnefningar)
In Bruges (1 tilnefning)
Iron Man (2 tilnefningar)
Kung Fu Panda (1 tilnefning)
Rachel Getting Married (1 tilnefning)
The Reader (5 tilnefningar)
Slumdog Millionaire (10 tilnefningar)
Tropic Thunder (1 tilnefning)
Vicky Christina Barcelona (1 tilnefning)
Wall-E (6 tilnefningar)
Wanted (2 tilnefningar)
The Wrestler (2 tilnefningar)

Við skulum demba okkur í þetta. Vonandi hafið þið gaman af. Ég raða í efsta sæti þeirri mynd eða persónu sem ég spái verðlaununum og svo í næstu sætum næst líklegustu sigurvegurunum að mínu mati. Síðasta sætið er þar af leiðandi það sem ég tel síst að vinna. Ekki flókið, ok? Svo nefni ég líka hverjir mér finnst hafa setið eftir eða orðið útundan.


Besta mynd
Þetta er áhugaverður flokkur. Slagurinn stendur tvímælalaust milli tveggja mynda; The Curious Case of Benjamin Button (sem hér eftir verður kölluð Benjamin Button) og Slumdog Millionaire (kölluð Slumdog hér eftir). Báðar mjög flottar og góðar myndir en svakalega ólíkar. Það blæs byrlega með Slumdog þar sem hún hefur sópað til sín öllum helstu verðlaunum sem hafa verið í boði á verðlaunahátíðum undanfarinna vikna. Hún er því augljóslega sigurstranglegust. Það væri auðvelt fyrir mig að spá henni sigrinum en ég ætla að taka áhættuna og skjóta á Benjamin Button, oft fer Óskarsakademían á skjön við almenningsálitið sem mér finnst töff og ég held að hún geri það í þessu tilfelli, það er þessi tilfinning sem ég hef fyrir henni. Mér finnst BB einfaldlega miklu sterkari Óskarsmynd en Slumdog þar sem sagan er töluvert flóknari og meiri um sig, í rauninni er öll myndin miklu stærri á öllum sviðum og þá skiptir ekki máli hvert er litið; sviðsmynd, leikarar, tæknibrellur, förðun, búningar ... Benjamin Button er stórmyndin í ár á meðan Slumdog er litla myndin sem hefur komið á óvart.
The Reader gæti einnig blandað sér í baráttuna um bestu myndina en ég held að hún eigi ekki séns í Benjamin Button eða Slumdog. Frost/Nixon og Milk eru algjör peð og tel þau ekki vera verðuga kandídata þó að Frost/Nixon sé mjög áhugaverð mynd og fagmannlega gerð.
Ég held að Akademían komi á óvart og veiti Benjamin Button stóru verðlaunin. Það væri ekki í fyrsta skiptið sem Akademían kæmi á óvart við val á bestu mynd, eitthvað sem hún er þekkt fyrir.

1. The Curious Case of Benjamin Button
2. Slumdog Millionaire
3. The Reader
4. Frost/Nixon
5. Milk

Mín ósk: Benjamin Button
Hvaða myndir sátu eftir? Gran Torino og Changeling, Clint Eastwood leikstjóri beggja myndanna

Besti leikstjóri
Danny Boyle, leikstjóri Slumdog Millionaire, hefur unnið allt sem hægt er að vinna fyrir þá mynd. Aftur á móti hefur leikstjóri Benjamin Button, David Fincher, setið eftir með sárt ennið þrátt fyrir að hafa unnið leikstjórnarsigur með sinni mynd þar sem hún er miklu metnaðarfyllra verkefni og margfalt stærri í sniðum en Slumdog. Verðlaunin fara til annars hvors þeirra og ef Akademían á að vera sanngjörn, þá vinnur David Fincher. Ron Howard á líka séns fyrir Frost/Nixon en ég tel að leikstjórar The Reader og Milk eigi ekki séns þrátt fyrir reynslubolta.
Hins vegar held ég að verðlaunin milli bestu myndar og besta leikstjóra gætu skipst heiðarlega á milli Slumdog og Benjamin Button. Slumdog gæti e.t.v. unnið besta myndin og þá fengi David Fincher Óskarinn fyrir leikstjórn, eða öfugt. Það hefur gerst oft áður að Akademían verðlaunar tvær myndir og skiptir þá verðlaununum á milli bestu myndar og besta leikstjóra, t.a.m. árið 2003 þegar Chicago vann besta mynd (óverðskuldað) og Roman Polanski vann fyrir The Pianist (mjög verðskuldað). The Pianist átti að sjálfsögðu að hirða bæði verðlaunin en Chicago hafði „almenningsálitið" og hafði gert það gott á Golden Globe líka. Þetta sama gerðist líka árið 2006 þegar Crash var valin besta myndin, öllum að óvörum, en leikstjóri Brokeback Mountain fékk leikstjórnarverðlaunin. Það er erfitt að sjá hvernig Akademían hugsar þetta en ég ætla að skjóta á tvöfaldan sigur Benjamin Button því hún á það svo skilið enda frábær mynd - besta myndin sem tilnefnd er í ár.

1. David Fincher fyrir The Curious Case of Benjamin Button
2. Danny Boyle fyrir Slumdog Millionaire
3. Ron Howard fyrir Frost/Nixon
4. Stephen Daldry fyrir The Reader
5. Gus Van Sant fyrir Milk

Mín ósk: David Fincher fyrir Benjamin Button
Hverjir voru skildir eftir? Christopher Nolan fyrir The Dark Knight og Clint Eastwood fyrir Changeling

Besti leikari í aðalhlutverki
Þetta er frekar óspennandi flokkur. Óskarinn er frátekinn fyrir Mickey Rourke fyrir The Wrestler. Hins vegar er ég að vonast til þess að Frank Langella muni veita honum verðuga keppni fyrir hlutverk sitt í Frost/Nixon þar sem hann lék engan annan en Richard Nixon, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Stórkostlegur leikur hjá honum, persónulega fannst mér hann betri en Rourke í sínu hlutverki en Rourke hefur bæði samúðina og vonina hjá almenningi og dómnefndum. Hann hefur meðbyrinn. Akademían gæti þó komið á óvart og valið Langella sem hefur að mínu mati týnst dálítið í umræðunni um besta leikarann. Sean Penn myndina hef ég ekki séð ennþá, bara trailerinn, en Penn er alltaf góður, t.d. vann hann Screen Actor Guild verðlaunin en það eru samtök leikara í Bandaríkjunum. Hann á því klárlega séns.
Ég var ánægður að sjá Brad Pitt tilnefndan en hann á því miður ekki séns, Rourke og Langella eru ofjarlar hans í þetta skipti. Pitt er mjög góður í sinni mynd þar sem hann eldist aftur á bak og þarf að sýna oft á tíðum dramatísk svipbrigði og líkamstjáningu. Mjög áhugavert hlutverk en hann geldur fyrir það hve mikið hann getur skýlt sér bak við tæknibrellur og förðun.
Ég hef ekki séð The Visitor en ég hef lesið að Richard Jenkins hafi verið stórkostlegur í sínu hlutverki.


1. Mickey Rourke fyrir The Wrestler
2. Frank Langella fyrir Frost/Nixon
3. Sean Penn fyrir Milk
4. Brad Pitt fyrir Benjamin Button
5. Richard Jenkins fyrir The Visitor

Mín ósk: Ég er ekki viss ennþá, ég hallast mest að Frank Langella en innst inni vonast ég eftir Mickey Rourke, hann á það svo skilið.
Hverjir voru skildir eftir? Clint Eastwood fyrir Gran Torino og Leonardo DiCaprio fyrir Body of Lies

Besta leikkona í aðalhlutverki
Engin spurning hér, Kate Winslet fær Óskarinn. Ef hún fær ekki Óskarinn fer ég að gráta. Þetta er sjötta tilnefningin hennar (hún er aðeins 33 ára) og það er kominn tími á hana. Hlutverk hennar í The Reader var mjög krefjandi og erfitt og hún negldi það (ásamt fleiru ... haha). Ég hef ekki verið svona „blown away" af kvenkyns hlutverki síðan ég sá Hilary Swank í Million Dollar Baby árið 2004. Kate Winslet á leikframmistöðu síðustu 5 ára, engin spurning um það. Hún vinnur. Ég sé bara enga aðra leikkonu eiga nokkurn séns í Kate sem er klárlega í sama gæðaflokki og Ingrid Bergman og Katherine Hepburn. Hún á bara eftir að verða betri og stærri. Stórkostleg!
Angelina Jolie gæti stolið sigrinum frá Kate en ég ætla svo sannarlega að vona ekki. Hún var mjög góð í Changeling þar sem hún hélt algjörlega uppi 150 mínútna kvikmynd en mér fannst hún nokkuð einhæf í hlutverkinu þar sem hún var annaðhvort grátandi eða rosalega sorgmædd undir flotta hattinum sínum. Hún gerði það þó afskaplega vel og er að vel að tilnefningunni komin. Hún sýndi það í þessari mynd að hún er alvöru leikkona.
Meryl Streep myndina hef ég ekki séð en hey, þetta er Meryl Streep sem við erum að tala um, drottningin sjálf sem fær hér sína 15. tilnefningu hvorki meira né minna. Geri aðrir betur. Það er aldrei hægt að útiloka drottninguna.
Anne Hathaway er ung og efnileg. Hún sýnir góðan leik í Rachel Getting Married. Ef Kate og Angelina væru ekki tilnefndar í ár fyrir sínu þungu og erfiðu hlutverk, ætti Anne Hathaway kannski séns en hún á einfaldlega við ofurefli að etja. Hennar tími kemur seinna.
Frozen River hef ég ekki séð svo ég er ekki dómbær á frammistöðu Melissu Leo.
Ég hef þó komist að því í gegnum árin að Óskarsakademían kemur sjaldan á óvart í leikaraflokkunum. Hollywood elskar stjörnurnar sínar og þó að hlutverkin séu ekki þess verðug að hampa gullnu styttunni, hafa leikararnir sem túlkuðu þau samt unnið. Gott dæmi um þetta er Julia Roberts árið 2001 fyrir Erin Brockovich - engan veginn Óskarsverðlaunaleikur en af því að stjarna hennar skein skært þá vann hún. Gerðist líka árið 2003 þegar Nicole Kidman vann fyrir The Hours. Hún var orðin stórstjarna eftir Moulin Rouge (þar sem hún vann ekki Óskarinn) og The Others og því var þetta hennar „moment". Kate er í sömu sporum og þær, hún er skærasta stjarnan en ólíkt Kidman og Juliu Roberts þá á hún svo sannarlega skilið að vinna.

1. Kate Winslet fyrir The Reader
2. Angelina Jole fyrir Changeling
3. Meryl Streep fyrir Doubt
4. Anne Hathaway fyrir Rachel Getting Married
5. Melissa Leo fyrir Frozen River

Mín ósk: Kate Winslet all the way fyrir The Reader
Hver var skilin eftir? Cate Blanchett fyrir The Curious Case of Benjamin Button. Átti sannarlega skilið tilnefningu!

Besta aukahlutverk karla
Óskarinn er frátekinn fyrir Heath Ledger fyrir hlutverk Jókersins í Batman myndinni The Dark Knight. Ein Óskarstilnefning hefur ekki verið svona fyrirsjáanleg síðan ....... aldrei. Mér fannst hann mjög góður, stjörnuleikur alveg hreint, en hlutverkið var sett þannig upp að hver sem er hefði getað púllað það. Heath Ledger tókst þó að vera mjög sannfærandi geðsjúklingur og hann á skilið að vinna. Krafan er að hann vinni og ef hann vinnur Óskarinn, þá verður hann legend eins og James Dean. Dóu báðir ungir og báðir tilnefndir til Óskars eftir dauða sinn.
Ég er í rauninni ekki dómbær í þessum flokki þar sem ég hef aðeins séð tvær frammistöður af fimm en þetta er nokkuð augljóst - Heath fær Óskarinn.

1. Heath Ledger fyrir The Dark Knight
2. Philip Seymour Hoffman fyrir Doubt
3. Josh Brolin fyrir Milk
4. Robert Downey Jr. Fyrir Tropic Thunder (ógeðslega fyndið hlutverk)
5. Michael Shannon fyrir Revolutionary Road

Mín ósk: Heath Ledger fyrir The Dark Knight
Hver jir voru skildir eftir: Jeffrey Donovan fyrir Changeling og Mark Strong fyrir Rock‘n‘Rolla. Jafnvel líka Tom Cruise fyrir pínulítið hlutverk sitt í Tropic Thunder, en djöfull ógeðslega var hann góður.

Besta aukahlutverk kvenna
Þetta er mjög opinn og skemmtilegur flokkur. Erfitt að ráða í sigurvegara hérna. Tvær leikkonur tilnefndar fyrir sömu mynd, mynd sem ég hef ekki séð - Doubt, þær Amy Adams og Viola Davis. Viola Davis var aðeins í 12 mínútur í Doubt svo mér finnst það heldur stutt til að geta unnið Óskarinn, þó að þetta hafi verið kröftug frammistaða. Eftir því sem ég hef lesið, var Viola geðveik þessar 12 mínútur í myndinni. Amy Adams var í mjög stóru aukahlutverki og margir spá því að þær tvær muni splitta atkvæðunum milli sín, sem gerir aðrar leikkonur líklegri. Ég hef séð hinar þrjár frammistöðurnar og ég held að leikkonan muni koma úr röðum þeirra. Penélope Cruz er nokkuð góð í Vicky Christina Barcelona, sýnir mér aðra hlið á sér og það kom mér skemmtilega á óvart. Penélope vann einmitt BAFTA verðlaunin um daginn sem gerir hana óhjákvæmilega sigurstranglega og hún tapaði fyrir Kate Winslet á Golden Globe (en þær eru tilnefndar í sitthvorum flokknum núna), svo Penélope er augljóslega sigurstranglegust í þessum flokki.
Marisa Tomei er í miklu uppáhaldi hjá mér og hún klikkaði ekki í The Wrestler, ekkert frekar en venjulega. Hún átti að vera tilnefnd í fyrra fyrir Before The Devil Knows You‘re Dead en það var gengið framhjá henni. Þess vegna vona ég að hún vinni í ár því hlutverk hennar í The Wrestler er krefjandi og hún negldi það.
Taraji P. Henson kemur líka sterk inn fyrir The Curious Case of Benjamin Button en ég hef ekki trú á því að hún muni vinna.

1. Penélope Cruz fyrir Vicky Christina Barcelona
2. Viola Davis fyrir Doubt
3. Marisa Tomei fyrir The Wrestler
4. Amy Adams fyrir Doubt
5. Taraji P. Henson fyrir The Curious Case of Benjamin Button

Mín ósk: Marisa Tomei
Hver var skilin eftir? Ahney Her fyrir Gran Torino

Besta handrit skrifað beint fyrir myndina
1. In Bruges
2. Wall-E
3. Milk
4. Happy-Go-Lucky
5. Frozen River

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni
1. Benjamin Button

2. Slumdog Millionaire
3. Frost/Nixon
4. The Reader
5. Doubt

Besta kvikmyndtaka
1. Slumdog Millionaire

2. The Dark Knight
3. Changeling
4. Benjamin Button
5. The Reader

Besta klipping
1. Slumdog Millionaire

2. The Dark Knight
3. Frost/Nixon
4. Benjamin Button
5. Milk

Besta listræna stjórnun
1. The Curious Case of Benjamin Button

2. Changeling
3. The Dark Knight
4. The Duchess
5. Revolutionary Road

Besta hljóð
1. Wall-E

2. The Dark Knight
3. Benjamin Button
4. Slumdog Millionaire
5. Wanted

Bestu tæknibrellur
1. Benjamin Button

2. The Dark Knight
3. Iron Man

Besta tölvuteiknimyndin
1. Wall-E

2. Kung Fu Panda
3. Bolt

Þá er þetta komið í bili. Vonandi höfðuð þið gaman að þessari lesningu. Megi besta tilnefningin vinna.

Róbert F. Michelsen
4 athugasemdir

Stutt og laggott

15. febrúar 2009 klukkan 11:06
Þið verðið að fyrirgefa mér þessa leti hérna. Ég hef nákvæmlega ekkert merkilegt að segja. Dagarnir líða áfram án þess að nokkuð markvert gerist. Skólinn er bara eins og hann er, ekkert merkilegt að gerast þar núna - ekkert skólaúr á dagskrá eins og er en vonandi breytist það í vikunni. Höfum verið að byrja á nýju viðfangsefni sem heitir "Precision timing" sem, eins og nafnið gefur til kynna, er að stilla ganginn í úrinu mjög nákvæmlega og þetta er heilmikið viðfangsefni. Þarna kemur öll þekkingin á úrverkinu saman og það þarf að greina hvar villan/villurnar eru í úrinu sem veldur því að í ákveðinni stöðu það seinkar sér eða flýtir sér - sem sagt, það gætu verið þúsund hlutir sem veldur því. Allt verður að vera hárrétt og gott til að fá úrið til að ganga rétt með ákveðnum frávikum (sem eru 3 sekúndur delta á dag). Mjög áhugavert og mikilvægur hluti af úrsmíðinni. Í rauninni mikilvægasti hluti úrsmíðinnar.

Anna byrjar í 5 mánaða frönskunáminu sínu á morgun. Hún hefur verið að undirbúa sig undanfarnar 2 vikur með því að fara yfir gömlu gögnin sín frá MK og Alliance Francais. Hún á eftir að standa sig vel stelpan. Það pirrar mig pínulítið hvað franskan virðist liggja vel fyrir henni en erfiðlega fyrir mér. En svoleiðis er það bara, hún er klárari en ég.

Ég er orðinn vel þreyttur á veðrinu hérna. Það kemur mjög gott veður í nokkra daga sem veldur því að ég kemst í vorfíling en svo dettur það niður í frost og snjókomu. Ég þrái að fá smá hita og sól. Á sama tíma í fyrra var ég að spila körfubolta á stuttermabol! Þetta er allt öðruvísi vetur en í fyrra sem var mjög mildur og þægilegur. Þessi vetur hefur verið mjög kaldur og hvítur. Global warming my ass!

Ætla að enda þetta á góðum fréttum fyrir mig og Önnu. Við erum líklegast að fá fullt af gestum núna á næstu mánuðum. Tinna Karen frjálsíþróttavinkona okkar með meiru ætlar að ríða á vaðið í lok mars og vera hjá okkur í 4-5 daga. Svo kemur tengdamamma um páskana og verður hjá okkur í rúma 6 daga. Að lokum er góður vinur minn hann Gunnar Þorbergur, a.k.a. Gussi, a.k.a. Gössman, a.k.a. Gunni Tobbi, líklegast að koma í lok apríl og vera yfir 25 ára afmælið mitt. Mér líst gríðarlega vel á kappann og hann sýnir það og sannar að hann er langbestur. Hann verður þar af leiðandi sá eini úr Kvennó vinahópnum sem stendur við orð sín og kíkir í heimsókn.

Ekki lengra í bili, við heyrumst síðar og ég reyni að rugla eitthvað hérna í vikunni.
Róbert F. Michelsen
6 athugasemdir

Metnaðarleysi

03. febrúar 2009 klukkan 21:19
Eehhhhhh .... Get ekki sagt að ég sé fullur af metnaði þessa dagana að halda þessu bloggi skemmtilegu. Ekki það að það hafi einhvern tímann verið skemmtilegt. Þar að auki hefur þessi vika einkennst af hálfgerðum doða í skólanum vegna "óspennandi" verkefna. Skólaúrið mitt var nefnilega sett á tveggja, þriggja vikna bið. Eftir þrjár virkilega áhugaverðar og spennandi vikur þar sem ég var eingöngu að vinna í úrinu mínu, þá er venjulega úrsmíðin sem ég er í núna frekar óspennandi - því miður. Ekki það að þetta sé leiðinlegt sem ég er að gera núna, mér finnst ég bara svo tómur eitthvað eftir svona rosalegar þrjár vikur þar sem ég hugsaði um úrið mitt hverja einustu sekúndu sólarhringsins, í svefni líka.

En að öðru, ég veit að það eru örugglega allir komnir með ógeð af þessu úri mínu nema ég sjálfur. Anna mín er komin, hún kom á miðvikudaginn fyrir tæpri viku síðan. Gott að hafa stelpuna hjá sér, neita því ekki, þó að frelsi mitt sé orðið ekki að neinu. Anna stjórnar þessu heimili með harðri hendi og ég get ekkert annað en hlýtt.

Við fjárfestum í sjónvarpi á laugardaginn. Ákváðum að gefa skít í kreppuna og vera góð við okkur, svona einu sinni. Þetta sjónvarp var hvort eð er ekki tekið á 36 mánaða myntkörfuláni svo við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af því að fá óvæntan "glaðning" eftir á (eitthvað sem Íslendingar hefðu átt að pæla í fyrir tveimur árum síðan). Við fengum okkur þetta rosalega fína LG sjónvarp, 32" sem er fín stærð sé tekið mið af stærð íbúðarinnar minnar. Alveg lygilegt verð á þessari græju því miðað við gæðin þá kostaði þetta sjónvarp nánast ekki neitt eða 60 þús krónur miðað við gengi. Núna getum við allavega farið að horfa á hinar ýmsu stöðvar en við höfum 46 stöðvar ef ég man rétt, þ.á.m. spænskar, frankar, þýskar, breskar og amerískar fyrir utan auðvitað svissnesku stöðvarnar. Mesti munurinn verður þó að horfa á bíómyndir í alvöru sjónvarpi, í staðinn fyrir 15" tölvuskjáinn minn (sem hefur þó staðið fyrir sínu).

Hafið það gott. Ég hef ekkert meira að segja og ég ætla ekki að lofa neinu nýju bloggi á næstunni. Verðum að sjá til hvernig stuði ég verð í.

Eitt að lokum: Fjölni Þorgeirsson sem forsætisráðherra Íslands. Hann tekur sko verkin í sínar hendur og reddar málunum. X-Fjölnir!
Róbert F. Michelsen
4 athugasemdir